Innskráningar kubbur

Auglýsing

Búiđ

01. október 2007 klukkan 18:35

Allt búið....

bless

PS: Henti myndunum því ég nenni ekki að borga fyrir þetta myndaalbúm lengur

OPA...

20. júní 2007 klukkan 16:22

Jaeja...loksins drullast eg ti ad blogga fra Krit...vonandi eru thid ekki haett ad heimsaekja siduna mina...

Thad er nu litid "spenandi" buid ad gerast. Mest buin ad hanga med foreldrum minum a strondina og rafa um i Rethymnon...sem er snilldarbaer med fullt af litum gotum nanast eins og volundarhus og fullt af pinulitlum budum med alls konar helvitis drasl sem madur hefur ekkert med ad gera. Vid erum lika med bilaleigubil svo vid hofum farid i hellings ferdir og forum til Knossos i dag (fyrir ta sem hafa klarad SAG103...haha) og hofum farid ad skoda klaustur og nokkrar strendur og ein Sem heitir Preveli...thad var svona...ehm hvad segir madur...ja....paradis a jordu. Graen a sem rann inni dal milli risa fjalla umkringd af PALMATRJAM og vatnid alveg graent sem sidan rann ut i sjo a strondinni og madur thurfti ad labba yfir svona fjallastig til ad komast thangad og vid forum a hjolabat nidur eftir anni...(thurftum ad hjola med einverja helvitis freka itala sem voru med onytan bat....) thetta minnti a kvikmyndina the beach nema eg var tharna med mommu og pabba en ekki fullt af hashreykandi hippum. Reyndar voru svoleidis sem bjuggu tharna....sa kofann theirra hja anni og heyrdi tha spila a einhverja flautu....thorndi ekki ad kikja inn til theirra eda njosna um tha.....hefdi att ad gera thad....
Annars er margt heillandi ad sja...svosum litil sigaunaborn sem syngja fyrir mann og setjast a strandbekki og girda nidrum sig og pissa svona um thad bil thar sem turisti gaeti sett toskuna sina eda fotin sin...
Adallega hiti og sol samt og MATUR.....griskur loffffly matur...salat med juicy tomotum og yuummmy....
Busy program hja okkur svo eg hef ekki kynnst neinum krokkum....svo erum vid ad fara fra rethymnon og bua a threm mismunandi stodum naestu viku svo....
En eg nennessuggi...farin i sturtu ad skola burt sandinn fra strondinni.....enjoy!!

bleeee

Góđir hálsar...

04. júní 2007 klukkan 21:02

í dag er góður dagur...Þrátt fyrir smá sjokk í íslenskuprófinu, sem leið reyndar hjá þegar ég flétti prófinu, er ég í sæluvímu. ÍSL303 er úr heiminum og þá er lífið indælt. Var búin að kvíða fyrir þetta próf í hálft ár...
Nú eru bara létt próf eftir..."STÆ"313 eða öllu heldur "fylla út í töflur"313, Lífsleikni (haha) og Þýska, sem ég hef meðfædda hæfileika í af einhverjum ástæðum. Svooo þetta verður lítið mál.
Á mánudaginn eftir viku verð ég komin heim heim heim til Oslóar í sólina á svölunum að éta jarðarber. Svo er ferðinni heitið til Krítar 14 júní og verð þar að skoða einhverjar fornar grískar hallir og fljóta í sjónum í tvær vikur. Það verður of yndislegt til að ég nenni að koma myndinni sem ég er með uppí hausnum á mér inn í þetta blogg.
Svooo stoppa ég eitthvað í Osló áður en ég kem aftur til Akureyrar að vinna sem spyrill á Gallup, sem verður yndisleg tilbreyting frá fyrrverandi starfinu á Hótel KEA sem herbergisþerna að þrífa þýsk punghár allt sumarið...
Ég spái góðu sumri og ég HEIMTA enn og aftur útileigur í sumar og brjáluð partý því svo tekur við nýr vetur án Lilju og án Heibbu lillu Ameríkufara. (or shall we say Vesturíslendingur)
Eeeen ég nennessugi....þið eruð hvort eð er hætt að kommenta...haha :P

Próf og nýskipuđ ritstjórn síđunnar...

29. maí 2007 klukkan 13:45

Já eins og glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir hef ég ákveðið að fjarlægja þetta litla slys sem seinasta bloggfærsla var. Ég hef suymsé skipað sjálfa mig nýjan ritstjóra síðunnar þar sem höfundur bloggfærslna á það til að missa sig verður einhver að veita þessum bloggníðing aðhald. Spáiði í að níðast svona á einn flokk.
En ég lofa ykkur lesendur góðir að slíkt orðabragð mun ekki eiga leið inn á þessa ágætu síðu aftur...ég lofa...
Próftíðin leggst ágætlega í mig. Maður finnur sér einhvernveginn í þessum prófum með tímanum. Allir líka voða afslappaðir í þessu svona á vorönn. Sumarfiðringurinn alveg að drepa menn og allt það.
Ég er að fara til Krítar eftir skóla. Stoppa í Osló nokkra daga og verð síðan tvær vikur á krít að skoða fornar hallir og helli og eitthvað svona fyrir sögunörd eins og mig.
Svo er Lilja mín flutt suður bara komin með vinnu á Leifstöð og keyrandi um á fjólubláan nissan micra... :)
Hvernig verður næsta ár án Lilju og Heibbu...verður athyglisvert.
Ég var búin að lofa einhverjum myndum en ég held ég hafi óvart eytt forritinu til að hlaða myndunum inn svo það getur tekið einhvern tíma... hehe
En nú verð ég að drullast til að æfa mig fyrir munnlega prófið í stjórnmálafræði...

Sumar, ţúsundkallinn, bensínfótarkrampinn...?

07. maí 2007 klukkan 19:27


Já krakkar...til tilbreytingar er svo mikið um að vera í lífinu mínu þessa daganna að ég hef ekki séð færa um að stunda bloggið.
Sumarið leit aðeins við og allir nánast komnir úr öllum fötunum og út í sólbað en það er alltaf svoleiðis. Við vitum öll að snjórinn kemur aftur vonandi er það samt bara pínu slydda og rigning eftir núna. Allir farnir að lengja eftir sumarið.
Ég fór í gítarpróf og spilaði á tónleikum. Rúllaði því upp og óþarfi að nefna það frekar kannski. En til gamans má geta að ég átti snilldardag í gær, sunnudag. EN þá ætlaði ég að læra fyrir stærðfræðipróf daginn eftir og komst að því að ég hafði gleymt bókunum í skólanum á föstudaginn, keyri niðureftir, var læst, öskraði á stýrið í bílnum, fór heim. Svo var ég í mótþróasrulludtuði að tuða um ALLT í sjónvarpinu. Maður veit að það er slæmt þegar maður er farinn að láta sig varða um parketauglýsingar eins og það sé heimsendir að slagorðið hafi verið pínu slæmt. Eeeeen svo bættist ofaná hörmungarnar að ég varð veik með hálsbólgu og allt það...Svo ég var gífurlega hress klukkan hálf átta að læra fyrir prófið í morgun á bókasafninu, skeit EKKI á mig í prófinu, var þreytt, fór heim og skrópaði í næstu 4 tímum, mætti í lífsleikni oooog þar fram eftir vegi...veit þið eruð hætt að nenna að lesa....

....EEEn að öðrum efnum. Jú helgar undanfarið hafa verið góóðar. Ég held að sagan af bílkeyrslunni og þúsundkallinum, michael jackson gaurnum, harmonikkusígaununum, endalausu ferðirnar út í síðuhverfi að ná í eitthvað fólk og allt það verði að bíða betri stund ef þið eruð ekki öll löngu búin að frétta af þessu.

Ég held ég sé bara afslöppuð með þessa vorönn bara legst allt svo vel í mig núna...Ég held mér hafi tekist að standa við hugafarsbreytinguna fyrir utan pííínu lífsnauðsynlegt væl og tuð.

Sumarið auðvitað ennþá í móðu ef ekki bara þoku, en mér er skítsama svo lengi sem ég kemst í sól og bara eitthvert út og veðrið verði gott á klakanum...OOG í ár HEIMTA ég a.m.k. eina útileigu!!

Sé ykkur....úff á rúntinum!


Sjúbabbara

17. apríl 2007 klukkan 16:17

Þá var það víst blogg...

Jú páskarnir voru ágætir...veit samt ekki alveg hvað ég var að hugsa í fríinu þar sem ég á allt of mikið eftir að læra ennþá.
Ég leyfi mér bara að fullyrða að hið nýja og endurbætta lífsviðhorf er að gera ágætis hluti þessa daganna. Mér líður bara ágætlega og er alltaf að reyna að vera ekki að taka allt of alverlega. Það gengur misvel en betur en við mátti búast...
Nú er t.d. stutt í próf og hellingur að gera. En ég er bara í ´góðum gír sko. Bara taka vel á því, tónlistarskólinn að klárast og rústa því af og svo bara allt á fullu fram að prófum.
Sumarið er í algjörri móðu, sem er frekar slæmt þar sem maímánuður nálgast óðum. En ég veit ekki hvort ferðinni verður heitið til Cróatíu, Spánar eða San Fransisco....þar sem seinasti kosturinn var að koma til sögunnar styð ég hann. Segir sig sjálft....Væri geggjað að fara þangað og láta heilla sig algjörlega...hef alveg grun um að ég endi í háskóla þar ef ég fæ einhverja styrki!
Eeeeen....anyways þá er maður að vellta því fyrir sér hvort KEA í eitt sumar enn sé málið eða ekki. Það er náttúrulega aldrei að vita hvort maður fær vinnu annarsstaðar. Hvernig á maður þá að fara að? sækja um annars staðar en biðja núverandi vinnuveitenda um meðmæli en þurfa samt kannski vinnu hjá honum í sumar EF maður fær ekki hina vinnuna....mér er ílla við það en fór samt niður á póstinn og sótti um í dag. Maður verður bara að vona...erfitt að sækja um vinnu...
Já helgin var ótrúlega fín. Sjaldan sem svona margt er í gangi í þessu yndislega bæjarfélagi hérna. Svo er bara fullt framundan í félagslífinu...sumt af þessu helsta og margir frídagar og allt eikkað svona götótt eins og það á að vera á vorönn...svo maður alveg fær sjokk þegar allt í einu er komin próftíð og maður er ekki búin að neeeeinu!
En "that's liiife, that's what aaaal the people saaaay, you're runnin' high in april, shot down in maaaaay, but I know I'm gonna chaaange that sooon, when I'm back on top, BACK on top in Juuuune.....I say....."
En ég segi að við þarna ma-ingar fjölmennum í menningarferðina! Mig langar geðveikt. Hanga saman í reykvavík eina helgi og gista í MR....ódýrt og fínt líka!
En ég er alveg hætt að nenna þessu....lesiði þetta drasl, kommentið og bara látiði lífið leeeeika við ykkur í sólskininu og vorloftinu....(og ofnæmiskastinu og lekandi augunum hvert skipti sem maður fer út ....haha:):) )
Bleee


Breytt hugarfar međ vorinu

25. mars 2007 klukkan 21:19

Okei....

Það er kominn tími á að rífa sér uppúr vetrardvalanum. Það er stundum soltið sniðugt að bara hreinsa útúr sér alla neikvæðni og bara endurbæta sig. Bara reyna að búa til eitthvert ímyndað nýtt upphaf. Reyna að vera betri manneskja og bjartsýnni.
Ég þarf soltið mikið að hreinsa úr mér helvítis biturleikan. Hætta vælinu. Það eru allir komnir með nóg af vælubloggunum um tilbreytingarlausa tilveru og nístandi niðurdrepandi hversdagsleikan. Hann er bara leiðinlegu af því að við gerum hann leiðinlegan.
Glöggir lesendur muna eftir því að ég hef lofað "vælmunnkörfu" nokkuð oft áður og hún á það til að slitna eftir rúma viku, en það forðar mér ekki frá annarri tilraun.
Páskafríið verður vonandi notað í eitthvað annað en að rækta myglu í heila og utan á allan inniþreyttan líkaman, en maður má ekki lofa of miklu í einu. Ég verða að gera eitthvað til að breyta tilverunni þó það sé ekki nema breytt hugarfar. Ég hef meira að segja ætlað mér eitthvað stærra, eins og að láta það smitast á aðrar manneskjur í hringum mig.
Bílprófið er soltið seint að fara að blogga um, en frelsið sem fylgir ökuskírteininu í peningaveskinu er hreint og beint unaðslegt ef ekki bara eins frábært og ég bjóst við.
Króatía og Montenegró í sumar er eiginlega staðfest. Þá er líka komin enn ein ástæða fyrir aukna bjarsýni og jákvæðni. (Er ég nokkuð að verða grunsamlega jálvæð hérna....og boring?)
Já já....svo var það helgin. Ekki má gleyma að nefna hana. Föstudagurinn hvarf inn í sófann og imbakassan eins og á til að gerast....og bara gott mál. Laugardagurinn var hið alræmda afmælisteiti hjá Heibbu. Það var ótrúlega vel heppnað og vantaði bara blöðrurnar sem kremið á kökuna og það hefði verið nálægt því að vera fullkomið.
Það er rólegt í skólanum fyrir páksa til tilbreytingar og það er ágætt því þá gefst betra svigrúm fyrir breyttu hugarfari.

Ykkar Inga....eða hvað?

Rädda Joppe - Död eller levande!

25. febrúar 2007 klukkan 21:11

Jámm. Ég er sem sagt að vinna í því að klára að setja inn myndirnar frá seinustu helgi. Allt að gerast. Þetta er búin að ver chill læra vera duglegur og éta of mikið nammi helgi. Það er samt alveg ágætt sko. Fengum gesti frá Reykjavík og við leigðum The Departed....Þetta er náttúrulega besta mynd sem ég hef séð mjööög lengi. Mæli eindregið með henni, bara hlaupa út í leigu eða helst útí búð og redda þessa mynd.

Dáltið mikið að gera hjá manni núna, sem er nú reyndar ekkert nýtt. Eins og þið vitið er ég reyndar alltaf að væla undan því. En ég held þetta sé svona fíkn að vera alltaf á fullu. Ég er alla veganna að pringa úr metnaði af óútskýanlegum ástæðum. Ég skil ekki hvaðan ég fæ þetta...Held alltaf að metnaðurinn sé búinn en....anyways

Svo er bara ótrúlega lítið að gerast svona annars. Bara að hugsa um sumarið eins og venjulega. Bílprófið nálgast reyndar óðum. Það verður ótrúleg snilld. En samt ótrúlega dýrt. Ég þori líka að veðja að ég verði vinsælli en áður.....svona að síminn fari allt í einu að hringja á óvæntum tímum... haha en þetta verður mest gaman samt. Ég er líka alveg til í tillögur um hvað ég eigi að gera á afmælinu mínu...Heibbs kannski við ættum að halda allsherjar birthday party saman?

En í dag varð mér hugsað til Rädda Joppe, sem var einn af mörgum uppáhaldsþáttum mínum í barnaefninu á sínum tíma. Þessir þættir snúast um strák sem á lítin ljótan brúnan bangsa sem heitir Joppe sem lendir alltaf í einhverjum háska (t.d. lenti hann næstum á öskuhaugana einu sinni þegar fjölskyldan fór í feluleik og hann faldi sig í ruslinu) og nágranninn bjargar honum oftast. (mamma stráksins er dáltið hrifin af nágrannanum) En maður hélt í hvert skipti að Joppe myndi deyja.

Þetta er strákurinn sem á bangsann!

Ég veit ekki hversu vel þið þekkið til klassískra sænskra barnaþátta...en Joppe telst alveg áreiðanlega til meistaraverka í þeim flokki. Algjör klassík! tékkið á þessu

Let the good times roll?

19. febrúar 2007 klukkan 21:15


jæja...ég er bara búin að vera hér sveitt að setja inn myndir (2. bekkur MA, Vor). Myndir frá föstudeginum og eitthvað eldri komið inn. Á eftir að setja frá laugardeginum en það gekk eitthvað ílla áðan svo ég gera það bara seinna við tækifæri!
En þetta var mjög góð helgi. Bara ótrúlega næs stemning. Hefði verið enn skemmtilegri ef Lily hefði verið með okkur en hún er víst komin á föstu kellingin og er too "busy" :P:P Svo er mín bara að fara suður á fimmtudaginn! Iss piss Svona er þetta ef maður hefur bara stað til þess að vera á þið vitið. En eftir nokkrar vikur getum við hangsað á rúntinum... haha Já hefði einhver sagt mér fyrir tveimur árum að ég væri farin að hlakka til að fara á rúntinn þá hefði ég hlegið harkalega. En sannleikurinn er einfaldlega sá að það er bara ekkert annað að gera á þessum stað þegar maður er 17 ára. (Trúi ekki að ég sé að segja þetta) En þið splæsið bensíni á mig einhverntíman haha....langar í bensínpening í afmælisgjöf...ætti ég ekki annars að halda teiti?? Læt ykkur um að segja skoðun ykkar á því bara.
Annars er fyrsta kóræfingin á morgun. Ég verð að játa að ég er bara orðin mjög spennt fyrir þessu. Líka bara að sjá hvort það sé eitthvað hresst fólk þarna í þessum kór.
2. H líka bara að missa sig í dag eins og aðra daga. Held að það geti orðið ansi sped umræður í lífsleiknitímum á þessarri önn. En það líður alla veganna ekki sá dagur að það serist ekkert fyndið. Það er nú alla veganna kostur...eða hvað?
Jú, svo er bara miklu meira að gerast í félagslífinu á þessarri önn. Gettu betur coming up og get ekki beðið eftir að sjá Karen í ljónsbúningi uppá sviði að lesa Shakespeare í vor:) Svo skelltum við okkur nú á konukvöldið. Það var bara eitt skemmtilegasta kvöld mjög lengi. Óendanlega fyndið.
Já ég get svo svarið það en lífið bara leikur við mig þessa dagana. Er óvenju jákvæð. Leggst bara ágætlega í mig þessi önn og stutt í bílprófið og allt það. (Ég rúllaði nú upp skriflega btw)

En nú er það Lost svo drullist þið til að skoða myndirnar sem ég hafði svona mikið fyrir og kvittið!

Adios

Sumar 2007?

12. febrúar 2007 klukkan 13:59
Alvarlega bloggið greinilega ekki alveg að gera sig hjá mér! En allt bara komið aftur í venjulegt horf einhvernveginn. Mér finnst ekki vera komið vorönn. Allt of fljótt að líða þetta drasl. Hellingur að gerast samt. Mikið í skólanum Njála og allt það...Svo er ég að fara í skriflegt ökupróf á fimmtudaginn.
Svo var ég að spá hvort ég ætti ekki að skella mér á inntökupróf í kórinn líka á fimmtudaginn?? Langar í kór. Líka að komast út og hitta fólk ekki vera bara einangraður heima að læra og losa sig lika við skammdegisþunglyndið. Annars verður maður svo brjálaður útí hversdagsleikann. Só þó það sé mikið að gera... Kannski ætti ég að drullast til að standa við það líka þar sem ég er búin að skrifa þetta á netið og svoleiðis... Læt ykkur um að neyða mig þangað á fimmtudaginn...okei?
Svo var nú helgin soltið spes....æi ekki blogghæft...
Svo er ég bara liggjandi á norskar ferðaskrifstofur á netinu. Er hætt við að vinna í Noregi. Fara frekar til útlanda og vinna svo bara hér heima. Langar núna mest til Sousse í Túnis í norður Afríku. Svona arabísk menning moskur byggingar og markaðir...Svo er þetta stutt frá Túnis borg og líka stutt í rústirnar af Karþagó. (SAG 103 nördinn....var kannski ekki búin að nefna að ég stefni í augnablikinu á stjórnmálasögu Austurlanda :P:P) Það væri allt of mikil snilld. Líka geðveikt ódýrt frá Noregi og ódýrt að vera þarna og versla...180 þús kall fyrir hótel og flug í tvær vikur....fyrir 3 manneskjur! Geggjað.... Kannski verð ég að gefast upp á Roskilde? Æi já örugglega. Samt THE WHO og RCHP að spila?
Eins og þið sjáið er ég að missa mig í sumarundirbúningi í Febrúar. Léttir manni langa daga:) haha

æi skella einni mynd af túnis!

Gamli hlutinn af Sousse....ég ÆTLA!

Prófíll

  • Nafn: Inga H. Ingulfsen
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Nemi